Kópavogspósturinn frá 1994

Kópavogspósturinn er óháð bæjarblað dreift ókeypis inn á öll heimili og fyrirtæki í Kópavogi með Íslandspósti.

Kópavogspósturinn hefur komið út sleitulaust frá 1994 og er langelsta óháða bæjarblaðið í Kópavogi.

Kópavogspósturinn kemur út tvisvar til þrisvar sinnum í mánuði og er honum dreift á fimmtudögum í 12.500 eintökum.

Kópavogspósturinn er prentaður á glans tímaritapappír.

Kópavogspósturinn fjallar um allt sem viðkemur Kópavogi og reynt er að hafa efnið sem fjölbreyttast. Allt frá fréttum af leikskólum bæjarins til félagsstarfs eldri borgara.

Ótrúlega góðar lestrartölur

Kópavogspósturinn er með mikla og sterka hefð á meðal íbúa Kópavogsbúa.

Árið 2008 gerði Capacent Gallup könnun á lestri Kópavogspóstsins og reyndist hann vera 80,2% á hvert tölublað á aldrinum 25-75 ára. Lestur Kópavogspóstsins hefur er sjálfsagt orðinn enn meira enda bæjarbúar farnir að huga meira að nærumhverfi sínu eftir fall bankanna.

Árið 2008 gerði Capacent Gallup könnun á lestri Kópavogspóstsins og reyndist hann vera 80,2% á hvert tölublað á aldrinum 25-75 ára. Lestur Kópavogspóstsins er sjálfsagt orðinn enn meira enda bæjarbúar farnir að huga meira að nærumhverfi sínu eftir fall bankanna.

Aðsent efni

Móttaka greina:
valdimar (hjá) kp.is

Hámarkslengd greina:
400 orð

Greinaskil:
Í allra síðasta lagi kl. 17 á mánudögum

Annað:
Ekki er tekið við greinum til birtinga í Kópavogspóstinum sem eru einnig sendar í birtingu á öðrum miðlum sem dreift er í Kópavogi.

Ekki er öruggt að grein birtist samstundis í næsta tölublaði eftir að greinin er send þar sem margar greinar geta borist í einu og safnast upp.

Nauðsynlegt er að fá mynd af greinarhöfundi með greininni.

Ekki er tekið við nafnlausum greinum.

Kópavogspósturinn

Valdimar Tryggvi Kristófersson hefur verið ritstjóri Kópavogspóstsins frá 2007. Á síðasta ári, 2010 hafa aldrei komið út fleiri tölublöð frá upphafi blaðsins, alls 33 talsins.

Almennar upplýsingar

Ritstjóri og útgefandi: Valdimar Tryggvi Kristófersson
Sími Kópavogspóstsins: 555 6101
Farsími: 697 4020
Útgefandi: Kópavogspósturinn ehf.